myndir26.jpg
 
 
Þú ert hérna: Kjörseðillinn
 
 
Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Tryggingarsjóðurinn

Lesa textann

You must have Flash Player installed in order to see this player.

Táknmálsþýðing

Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi er sjálfseignarstofnun sem hefur þann tilgang að veita viðskiptavinum banka lágmarksvernd gegn greiðsluerfiðleikum banka. Greitt er í sjóðinn vegna viðskiptabanka hér á landi og útibúa þeirra  í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).

Geti banki ekki greitt út innstæður viðskiptavina sinna er sjóðnum skylt að bæta þeim tjónið svo sem fé hans hrekkur til og að lágmarki 20.887 evrur fyrir hvern reikningseiganda. Þetta er nefnt innstæðutrygging. Sjóðnum er heimilt að taka lán til að greiða kröfuhöfum dugi eignir hans ekki til þess.

Íslensk lög um þetta efni, nr. 98/1999, eru í samræmi við reglur Evrópusambandsins um innstæðutryggingar. Reglurnar eru hluti af EES-samningnum og þeim er ætlað að tryggja lágmarksöryggi viðskiptavina banka.