Auðlesið mál
„Á Ísland að hefja á ný aðildar•viðræður við Evrópu•sambandið?“
Á Ísland að byrja aftur aðildar•viðræður við Evrópu•sambandið?
Ísland og Evrópu•sambandið tala saman um að Ísland verði með í Evrópu•sambandinu.
Á þessari síðu getur þú fengið upplýsingar um:
Hvað gerist eftir kosningar
Hvað gerist ef flestir svara „já“?
- Ísland byrjar aftur að tala við Evrópu•sambandið.
- Það þýðir ekki að Ísland fari strax í Evrópu•sambandið.
- Markmiðið er að búa til samning.
- Tekst að búa til samning?
Þá kýs fólk aftur á Íslandi.
Fólk kýs um hvort Ísland eigi að samþykkja samninginn. - Svo þarf Alþingi að breyta stjórnarskránni.
Hvað gerist ef flestir svara „nei“?
- Þá byrjar Ísland ekki að tala við Evrópu•sambandið.
- Ísland fer ekki í Evrópu•sambandið.
- Samt gæti Ísland byrjað að tala við Evrópu•sambandið seinna.
Það þýðir:
Alþingi og ríkisstjórnin þurfa ekki að fara eftir niðurstöðunni.
Ríkisstjórnin hefur samt lofað að fara eftir niðurstöðunni.
Hvernig lítur kjörseðillinn út?

Þú setur X í kassan fyrir framan svarkostinn sem þú ætlar að kjósa.
Ef þú vilt að Ísland byrji aftur aðildar•viðræður við Evrópu•sambandið setur þú X í kassann fyrir framan Já.
Ef þú vilt ekki að Ísland byrji aftur aðildar•viðræður við Evrópu•sambandið setur þú X í kassann fyrir framan Nei.
Þú mátt ekki nota nein önnur tákn en X.
Þú mátt ekki skrifa neitt annað á kjörseðilinn.
Ef þú notar önnur tákn eða skrifar á kjörseðilinn er atkvæðið þitt ógilt.
Það þýðir að það sem þú kaust sé ekki talið með.
Ef þú gerir mistök máttu fá nýjan kjörseðil hjá kjörstjórn.
Hver má kjósa?
- Íslendingar eru íslenskir ríkisborgarar.
- Pólverjar eru pólskir ríkisborgarar.
Býrð þú í útlöndum?
Hvernig kýs ég?
Að kjósa á kjördag
- nafnskírteini
- vegabréf
- ökuskírteini
Svona kýst þú á kjördag
Finndu kjördeildina þína
Á kjörstað getur þú fengið aðstoð við að finna þína kjördeild.
Sýndu skilríki
Í kjördeildinni sýnir þú kjörnefndinni skilríkin þín.
Kjörstjórn finnur nafnið þitt í kjörskrá.
Svo lætur kjörstjórnin þig fá kjörseðil.
Farðu í kjörklefa
Dragðu tjaldið fyrir.
Á kjörseðlinum eru tveir svarkostir.
Settu X í kassann við svarkostinn sem þú ætlar að kjósa.
Þú mátt ekki skrifa neitt annað á kjörseðilinn.
Brjóttu kjörseðilinn saman.
Það má enginn sjá hvað þú kýst.
Kjörkassi
Fyrir utan kjörklefann er kassi fyrir kjörseðla.
Settu kjörseðilinn þinn í kassann.
Þá hefur þú kosið.
Að kjósa fyrir kjördag
- nafnskírteini
- vegabréf
- ökuskírteini
Ert þú á Íslandi?
Ert þú í útlöndum?
- í sendiráði
- hjá ræðismanni
Á sumum stofnunum er hægt að kjósa fyrir kjördag
- dvalarheimilum fyrir gamalt fólk
- stofnunum fyrir fatlað fólk
- sjúkrahúsum
Fólk sem kemst ekki á kjörstað má stundum kjósa heima hjá sér
- fatlað
- veikt
- að eignast barn
Svona kýst þú fyrir kjördag
Sýndu skilríki
Kjörstjóri lætur þig fá:
- kjörseðil
- umslag fyrir kjörseðil
- fylgibréf með kjörseðli
- umslag til að senda kjörseðilinn og fylgibréfið í pósti
Opnaðu kjörseðilinn
Á kjörseðlinum eru tveir svarkostir.
Settu X í kassann við svarkostinn sem þú ætlar að kjósa.
Þú mátt ekki skrifa neitt annað á kjörseðilinn.
Brjóttu kjörseðilinn saman.
Settu kjörseðilinn í umslag fyrir kjörseðil.
Það má enginn sjá hvað þú kýst.
Fylltu út fylgibréfið
Á fylgibréfið skrifar þú:
- upplýsingar um þig
- hvert kjörseðillinn á að fara
Kjörstjóri getur aðstoðað þig með fylgibréfið.
Svo skrifar þú undir fylgibréfið.
Kjörstjóri skrifar líka undir fylgibréfið.
Settu umslagið með kjörseðlinum og fylgibréfið í hitt umslagið.
Að koma atkvæðinu á réttan stað
Nú eru 2 möguleikar.
1. Ert þú að kjósa á svæðinu þar sem þú býrð?
Til dæmis:
- Þú býrð í Borgarnesi
- Þú kýst hjá sýslumanninum í Borgarnesi
Þá setur þú umslagið í kjörkassa.
Þá hefur þú kosið.
2. Ert þú að kjósa annars staðar?
Til dæmis:
- Þú býrð í Borgarnesi
- Þú kýst hjá sýslumanninum á Akureyri
- Þú kýst í útlöndum
Þá sendir þú umslagið í pósti.
Umslagið á að fara í sveitarfélagið þitt.
Smelltu hér til að finna heimilisföng sveitarfélaga.
Þú getur líka beðið kjörstjóra um að senda umslagið fyrir þig.
Þá hefur þú kosið.