Um kynningarefnið
Landskjörstjórn á samkvæmt kosningalögum að standa fyrir víðtækri kynningu á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæði. Kynningartextinn er unninn af Lagastofnun Háskóla Íslands samkvæmt samningi við landskjörstjórn.
Lagastofnun er sjálfstæð rannsóknastofnun innan Háskóla Íslands. Ritstjórar textans eru Kári Hólmar Ragnarsson og Hafsteinn Þór Hauksson, sem eru báðir kennarar og rannsakendur við Lagadeild Háskóla Íslands. Þeir fengu ýmsa sérfræðinga sér til aðstoðar við afmarkaða þætti verkefnisins. Lagastofnun gerði einnig samning við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um skipulagningu á rýnihópum sem lásu drög að textanum yfir og komu með ábendingar.
Við framsetningu upplýsinganna er lögð áhersla á að efnið sé aðgengilegt og skiljanlegt þeim sem ekki eru sérfræðingar í málefnum Evrópusambandsins eða öðrum atriðum sem máli skipta í þessu samhengi.
Sumar spurningarnar sem hér er svarað eru flóknar og erfitt að gefa einföld og tæmandi svör. Mörg atriði í tengslum við Evrópusambandið, EES-samninginn og aðildarviðræður eru umdeild. Auk þess hefur fólk mismunandi skoðanir á hvernig hagsmunum Íslands er best borgið í þessu samhengi. Þetta kynningarefni getur eðli málsins samkvæmt ekki leyst úr slíkum ágreiningi.
Auglýsingastofan ENNEMM sá um hönnun og ráðgjöf varðandi framsetningu kynningarefnisins samkvæmt samningi við landskjörstjórn.
Landskjörstjórn er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hefur samkvæmt kosningalögum nr. 112/2021 yfirumsjón með framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Fulltrúar í Landskjörstjórn eru fimm, þrír eru kosnir af Alþingi og tveir eru valdir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Persónuverndar- og vafrakökustefna
Á þessari vefsíðu er friðhelgi virt og áhersla lögð á að vernda persónuupplýsingar.
1. Gagnasöfnun
Persónuupplýsingum á borð við nöfn, netföng eða tengiliðaupplýsingar er ekki safnað í gegnum þessa vefsíðu.
2. Vefgreining
Notast er við Simple Analytics til að greina notkun vefsíðunnar og til að bæta efni hennar.
- Simple Analytics er persónuverndarvæn vefgreiningarþjónusta.
- Þjónustan notar ekki vafrakökur.
- Þjónustan safnar ekki persónugreinanlegum upplýsingum eða vistar þær.
- Öll gögn eru uppsöfnuð og nafnlaus (t.d. fjöldi heimsókna, vinsælustu undirsíðurnar og tegundir tækja sem notuð eru).
- Öll vinnsla fer fram innan Evrópusambandsins.
Ítarlegri upplýsingar má kynna sér í persónuverndarstefnu Simple Analytics.
3. Vafrakökur
Þessi vefsíða notar ekki vafrakökur eða sambærilega tækni til rakningar. Hvergi er beðið um samþykki fyrir vafrakökum á þessari síðu þar sem þeirra er ekki þörf.
4. Miðlun gagna
Gögn eru hvorki seld, leigð, né deilt til þriðju aðila. Vefgreiningargögn eru eingöngu unnin af Simple Analytics innan Evrópusambandsins.
5. Réttindi þín
Sem notandi hefur þú réttindi samkvæmt persónuverndarlögum. Þar sem vefsíðan vinnur ekki með neinar persónuupplýsingar eiga þessi réttindi ekki beint við. Ef þú hefur hins vegar spurningar um persónuvernd á þessari síðu getur þú haft samband hér: thjodaratkvaedi@kosning.is
6. Vefhýsing
Vefsíða þessi er hýst af Webflow (Bandaríkin). Lénið er skráð í gegnum ISNIC (Ísland). Webflow kann að nýta undirvinnsluaðila og alþjóðlega innviði til að veita hýsingar- og efnisdreifingarþjónustu.