Þjóðaratkvæðagreiðslan
Loka

Af hverju er talað um að „hefja á ný“ aðildarviðræður?

Í stuttu máli

Vegna þess að það fóru fram aðildarviðræður við Evrópusambandið á árunum 2010–2013.

Lengra svar

Í spurningunni sem verður á kjörseðlinum er spurt hvort Ísland eigi að „hefja á ný aðildarviðræður“. Orðalagið tekur mið af því að árið 2009 sóttu íslensk stjórnvöld um aðild að Evrópusambandinu og aðildarviðræður hófust árið 2010 og stóðu yfir til ársins 2013. Skiptar skoðanir hafa verið um það hvort aðildarviðræður að nýju fælu í sér framhald viðræðnanna sem stöðvuðust árið 2013 eða hvort um nýtt ferli væri að ræða. Þegar þú kýst í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst 2026 þarftu ekki að taka afstöðu til þess.

Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.

Hvað viltu vita meira?

Til baka í allar spurningar