Aðildarviðræður
Loka
Verður haldin önnur þjóðaratkvæðagreiðsla?
Í stuttu máli
Ríkisstjórnin hefur boðað að ef samningar náist við ESB þá verði haldin önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort Ísland eigi að samþykkja aðildarsamninginn og gerast þar með aðildarríki að ESB.
Lengra svar
Ef aðildarviðræðum lýkur með því að aðildarsamningur liggur fyrir þá hefur ríkisstjórnin boðað að haldin verði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að samþykkja samninginn og gerast þar með aðildarríki að Evrópusambandinu.
Það er ekki lagaleg skylda að halda þá þjóðaratkvæðagreiðslu. Ákvörðun um það yrði í höndum Alþingis, eftir atvikum að frumkvæði ríkisstjórnar. Yfirlýsingar núverandi ríkisstjórnar um þessa fyrirætlan hafa hins vegar verið afdráttarlausar.
Það má einnig minna á að í tengslum við stjórnarskrárbreytingu, sem væri nauðsynleg áður en Ísland gerðist aðildarríki ESB, þyrfti að halda alþingiskosningar.
Sjá nánar svörin við eftirfarandi spurningum:
Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.