Hvað eru aðildarviðræður?
Í stuttu máli
Lengra svar
Markmiðið með aðildarviðræðum milli íslenskra stjórnvalda og fulltrúa ESB væri að ná samningi um inngöngu Íslands í ESB (aðildarsamningi). Aðildarviðræðum þarf þó ekki að ljúka með niðurstöðu um að ríki gerist aðili að ESB, þ.e. þeim gæti verið hætt eða þeim frestað án þess að samningar náist.
Aðildarviðræður snúast um það hvernig Ísland gæti fullnægt þeim skuldbindingum sem fylgja því að vera aðildarríki Evrópusambandsins. Í aðildarviðræðum er löggjöf umsóknarríkis (sem væri þá Ísland) borin saman við reglur Evrópusambandsins. Með þeim hætti er greint hvernig Ísland myndi tryggja að regluverk ESB myndi gilda hér á landi frá þeim degi sem Ísland yrði formlega aðildarríki.
Viðræðurnar snúast einnig um hvort sérstakar reglur myndu eiga við um Ísland, t.d. sérlausnir af einhverju tagi, undanþágur frá reglum ESB um tiltekin atriði, frestir til innleiðingar ákveðinna reglna o.s.frv. Slíkar sérreglur yrðu þá skráðar í aðildarsamninginn.