ESB og EES
Loka
Hvernig er ESB ólíkt öðru alþjóðasamstarfi?
Í stuttu máli
ESB felur í sér nána samvinnu aðildarríkjanna á mörgum sviðum. Með ESB er komið á sérstöku lagakerfi og aðildarríkin fela stofnunum ESB ákveðið yfirþjóðlegt vald.
Lengra svar
Ísland á aðild að mörgum alþjóðastofnunum, t.d. Sameinuðu þjóðunum, Evrópuráðinu, EFTA og NATO. Ísland hefur einnig gert fjölmarga alþjóðasamninga. Það sem helst greinir ESB frá öðru alþjóðasamstarfi er hversu náin samvinna er innan sambandsins á mörgum sviðum, hið sérstaka lagakerfi ESB og það yfirþjóðlega vald sem aðildarríkin fela stofnunum ESB.
Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.