Þjóðaratkvæðagreiðslan
Loka
Hvað gerist ef meirihluti kjósenda segir „nei“?
Í stuttu máli
Þá munu aðildarviðræður við Evrópusambandið ekki hefjast á ný.
Lengra svar
Að merkja við „nei“ á atkvæðaseðlinum þýðir að kjósandi vill ekki að íslensk stjórnvöld hefji á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Ef meirihluti segir „nei“ munu aðildarviðræður við Evrópusambandið ekki hefjast á ný.
Í öðrum svörum á þessum vef er fjallað um hvað aðildarviðræður fela í sér. Ef aðildarviðræður fara ekki fram þá verður Ísland ekki aðildarríki að ESB.
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar á þennan veg kæmi ekki í veg fyrir að aðildarviðræður færu fram einhvern tímann síðar. Ráðherrar og Alþingi hafa vald til þess að taka ákvörðun um það.
Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningurinn) mun halda áfram að gilda um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu, ásamt ýmsum öðrum samningum sem Ísland hefur gert.
Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.