Aðildarviðræður
Loka

Hvað er aðildarsamningur?

Í stuttu máli

Aðildarsamningur er samningur milli annars vegar umsóknarríkis (Íslands) og hins vegar ESB og allra aðildarríkja þess um inngöngu nýs ríkis í Evrópusambandið.

Lengra svar

Aðildarsamningar, sem mæla fyrir um inngöngu nýrra ríkja í ESB, eru jafnréttháir grunnsáttmálum ESB. Umsóknarríkið og hvert og eitt aðildarríki ESB, sem nú eru 27 talsins, þurfa að samþykkja aðildarsamning og að auki þurfa aðalstofnanir ESB að samþykkja (Ráðherraráðið (einróma) og Evrópuþingið (meirihluti), að fengnum álitum frá Leiðtogaráðinu og Framkvæmdastjórninni).

Í aðildarsamningi er mælt fyrir um skilyrði aðildar og hvernig og hvenær innganga ríkisins í ESB skuli eiga sér stað. Aðildarsamningur felur í sér að umsóknarríki samþykkir að taka upp og fylgja regluverki ESB. Hann kveður einnig á um sérreglur, t.d. aðlögunartíma á ákveðnum sviðum eða sérlausnir sem taka mið af aðstæðum í viðkomandi ríki. Slík atriði ráðast af niðurstöðu aðildarviðræðna.

Ef Ísland yrði aðildarríki að ESB á grundvelli aðildarsamnings þyrfti Ísland að innleiða, fylgja og beita reglum ESB, eins og þær munu breytast í framtíðinni, nema hugsanlegar sérlausnir í aðildarsamningnum eigi við.

Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.

Hvað viltu vita meira?

Til baka í allar spurningar