ESB og EES
Loka
Hvað er EES?
Í stuttu máli
EES er skammstöfun fyrir Evrópska efnahagssvæðið.
Lengra svar
Evrópska efnahagssvæðið (EES) var sett á fót með EES-samningnum (samningnum um Evrópska efnahagssvæðið). EES-samningurinn tók gildi árið 1994 og tengir saman ESB-ríkin og þau þrjú EFTA-ríki sem eiga aðild að EES: Ísland, Noreg og Liechtenstein. Megintilgangurinn er að innri markaður ESB, og það regluverk sem honum fylgir, nái einnig til þessara þriggja ríkja.
EES-samningurinn tekur til reglna um innri markaðinn sem tryggja eiga frjálst flæði á vörum, fjármagni, þjónustu og fólki yfir landamæri, auk tengdra reglna, t.d. samkeppnisreglna, reglna um ríkisaðstoð, neytendaverndarreglna o.fl. EFTA-ríkjunum sem eiga aðild að EES-samningnum er skylt að innleiða þær ESB-reglur sem falla undir samninginn í landslög.
Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.