Hvað kosta aðildarviðræður?
Í stuttu máli
Lengra svar
Að beiðni Alþingis tók utanríkisráðuneytið saman mat á beinum kostnaði við aðildarviðræður. Áætlaður kostnaður nemur samtals 1.895 milljónum kr.
Þeim áætlaða heildarkostnaði má skipta í þrjá flokka: kostnaður utanríkisráðuneytisins (launakostnaður, ferðakostnaður og annað) 1.120 milljónir kr., þýðingakostnaður 600 milljónir kr. og kostnaður annarra ráðuneyta 175 milljónir kr.
Kostnaðaráætlun þessi er óhjákvæmilega háð óvissu.
Í kostnaðaráætluninni er ekki gert ráð fyrir mögulegum styrkveitingum úr IPA-áætlun ESB (Instrument for Pre-accession Assistance). Það er sjóður ESB sem veitir styrki til umsóknarríkja sem eftir því óska til tiltekinna verkefna í aðdraganda aðildar. Um slíka styrki gilda reglur sem ESB hefur sett og þeim fylgja tiltekin skilyrði.