Aðildarviðræður
Loka

Þarf ég að taka afstöðu til þess hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið?

Í stuttu máli

Þjóðaratkvæðagreiðslan fjallar um aðildarviðræður við ESB, ekki inngöngu í ESB.

Lengra svar

Svarið við þessari spurningu er að vissu leyti ólíkt eftir því hvort merkt er við „já“ eða „nei“.

„Nei“ þýðir að Ísland eigi ekki að sækjast eftir því að gerast aðili að ESB. Án aðildarviðræðna verður Ísland ekki aðildarríki ESB. Kjósandi sem segir „nei“ er því að segja að Ísland ætti ekki að gerast aðildarríki Evrópusambandsins, a.m.k. ekki að sinni.

„Já“ þýðir að Ísland eigi að hefja aðildarviðræður á ný. Kjósandi sem segir „já“ er ekki endilega að segja að Ísland ætti að gerast aðildarríki Evrópusambandsins. Áður en Ísland gæti gerst aðildarríki þyrfti að stíga ýmis skref til viðbótar. Sjá svarið við Hvað þarf að gerast til að Ísland gangi í ESB?  

Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.

Hvað viltu vita meira?

Til baka í allar spurningar