ESB og EES
Loka
Er hægt að ganga úr ESB?
Í stuttu máli
Já. Upphaflega fylgdi Grænland Danmörku inn í samstarfið en gekk úr því árið 1985. Þá gekk Bretland úr ESB árið 2020 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu þar í landi árið 2016.
Lengra svar
Grunnsáttmálar ESB mæla fyrir um heimild aðildarríkis til þess að ganga úr sambandinu og málsmeðferð í því tilliti. Nýjasta og þekktasta dæmið um þetta er þegar Bretland gekk úr ESB árið 2020 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu þar í landi árið 2016. Þess má geta að þótt heimildin og málsmeðferðin varðandi úrsögn liggi ljós fyrir er úrsögn úr sambandinu í ýmsu tilliti flókið og krefjandi viðfangsefni.
Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.