Aðildarviðræður
Loka

Hvað taka aðildarviðræður langan tíma?

Í stuttu máli

Íslensk stjórnvöld hafa áætlað u.þ.b. eitt og hálft til tvö ár en nákvæm lengd viðræðna er óviss.

Lengra svar

Mat stjórnvalda er að aðildarviðræður gætu hafist fyrir lok ársins 2026 og að hægt væri að ljúka þeim á 18–24 mánuðum.

Aðildarviðræður núverandi aðildarríkja ESB hafa tekið mislangan tíma. Stystan tíma, eða minna en 18 mánuði, tóku aðildarviðræður Finnlands, Svíþjóðar og Austurríkis, sem allar áttu sér stað á  árunum 1993–1994. Lengstan tíma tóku viðræður Portúgal og Spánar, sem lauk árið 1985 og Króatíu, sem lauk árið 2011, þar sem aðildarviðræður stóðu yfir í meira en sex ár í hverju tilviki.

Ýmsar aðstæður, ekki síst aðild Íslands að EES-samningnum, skipta máli í þessu sambandi og myndu leiða til þess að viðræðurnar gætu tekið styttri tíma en annars væri. Allar tímaáætlanir í þessu sambandi eru óhjákvæmilega háðar nokkurri óvissu.

Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.

Hvað viltu vita meira?

Til baka í allar spurningar