Um hvaða málefni snúast viðræður?
Í stuttu máli
Lengra svar
Aðildarviðræður við Evrópusambandið eru skipulagðar út frá regluverki ESB. Regluverkinu er skipt í 35 samningskafla eftir málefnasviðum. Í viðræðunum er farið yfir hvern kafla fyrir sig og metið hvaða breytingar þyrftu að koma til hér á landi ef Ísland yrði aðildarríki og hvort mæla ætti fyrir um sérreglur um stöðu Íslands í aðildarsamningi.
Þar sem Ísland tekur þegar þátt í EES-samstarfinu og Schengen-samstarfinu fellur hluti regluverks ESB þegar undir skuldbindingar Íslands. Þannig hefur verið bent á að 21 af 35 samningsköflum aðildarviðræðna falli undir EES-samninginn. Það þýðir þó ekki að þeir kaflar séu sjálfkrafa afgreiddir, heldur að Ísland hafi þegar tekið upp stóran hluta þess regluverks sem þar er fjallað um. Í tveimur köflum til viðbótar, sem varða réttarvörslu og grundvallarréttindi annars vegar og utanríkis-, öryggis- og varnarmál hins vegar, hefur verið talið að mikið samræmi sé í afstöðu og stefnu Íslands og ESB.
Samningskaflarnir 35 eru þessir:
- Frjálsir vöruflutningar
- Frjáls för vinnuafls
- Staðfesturéttur og þjónustufrelsi
- Frjálsir fjármagnsflutningar
- Opinber innkaup
- Félagaréttur
- Hugverkaréttur
- Samkeppnismál
- Fjármálaþjónusta
- Upplýsingasamfélagið og fjölmiðlar
- Landbúnaður og dreifbýlisþróun
- Matvælaöryggi og dýra- og plöntuheilbrigði
- Sjávarútvegur
- Samgöngur
- Orkumál
- Skattamál
- Efnahags- og peningamál
- Hagtölur
- Félags- og vinnumál
- Fyrirtækja- og iðnstefna
- Samevrópsk net
- Byggðastefna og samræming uppbyggingarsjóða
- Réttarvarsla og grundvallarréttindi
- Dóms- og innanríkismál
- Vísindi og rannsóknir
- Menntun og menning
- Umhverfis- og loftslagsmál
- Neytenda- og heilsuvernd
- Tollabandalag
- Utanríkistengsl
- Utanríkis-, öryggis- og varnarmál
- Fjárhagslegt eftirlit
- Framlagsmál
- Stofnanir
- Önnur mál