Þjóðaratkvæðagreiðslan
Loka

Er niðurstaðan bindandi?

Í stuttu máli

Nei, niðurstaðan er ekki lagalega bindandi heldur ráðgefandi. En ríkisstjórnin hefur boðað að niðurstöðunni verði fylgt.

Lengra svar

Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst 2026 verður haldin samkvæmt ákvörðun Alþingis (þingsályktun nr. 14/157) í samræmi við ákvæði kosningalaga nr. 112/2021.

Í 3. mgr. 123. gr. kosningalaga segir að niðurstaða slíkrar þjóðaratkvæðagreiðslu sé ráðgefandi.

Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla þjónar þeim tilgangi að fá fram afstöðu kjósenda til þess málefnis sem greidd eru atkvæði um. Hvorki Alþingi né stjórnvöld eru hins vegar lagalega bundin af niðurstöðunni. Þannig yrði t.d. ekki hægt að gera þá kröfu fyrir dómstólum að stjórnvöld fylgi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Ríkisstjórnin hefur boðað að ætlunin sé að fylgja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Í þessu kynningarefni er gengið út frá þeirri forsendu að svo verði. Samkvæmt því myndu aðildarviðræður hefjast ef fleiri merkja við „já“ heldur en „nei“.

Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.

Hvað viltu vita meira?

Til baka í allar spurningar