ESB og EES
Loka

Hvaða lönd eru í ESB?

Í stuttu máli

Aðildarríki ESB eru nú tuttugu og sjö.

Lengra svar

Aðildarríki ESB eru nú tuttugu og sjö:

Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Króatía, Kýpur, Lettland, Litáen, Lúxemborg, Malta, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Ungverjaland, Tékkland og Þýskaland.

Landakort sem sýnir Evrópu. Löndin sem tilheyra Evrópusambandinu (talin upp hér á undan) eru aðgreind með lit.

Í gegnum árin hefur aðildarríkjum ESB farið fjölgandi:

1957: Belgía, Holland, Frakkland, Ítalía, Lúxemborg og Þýskaland (stofnmeðlimir Evrópubandalagsins, sem þróaðist síðar í ESB).

1973: Danmörk, Írland og Bretland.

1981: Grikkland.

1986: Spánn og Portúgal.

1995: Austurríki, Finnland og Svíþjóð.

2004: Eistland, Kýpur, Tékkland, Lettland, Litháen, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía og Ungverjaland.

2007: Búlgaría og Rúmenía.

2013: Króatía.

Upphaflega fylgdi Grænland Danmörku inn í samstarfið en gekk úr því árið 1985. Þá gekk Bretland úr ESB árið 2020 eftir þjóðaratkvæðagreiðslu þar í landi árið 2016.

Efnið á þessari síðu var gefið út þann 6. júlí 2026.

Hvað viltu vita meira?

Til baka í allar spurningar